Avalanches
Sá þáttur Veðurstofu Íslands sem snýr að ofanflóðum fjallar um rannsóknir, vöktun og hættumat vegna ofanflóða á Íslandi. Ofanflóð er samheiti fyrir snjóflóð, skriður og krapaflóð. Hjá stofnuninni starfa sérfræðingar með fagþekkingu og tækjabúnað til að beita fremstu tækni í vöktun og rannsóknum á ofanflóðum.
Veðurstofan gerir svæðisbundnar snjóflóðaspár fyrir fimm landsvæði. Á tímabilinu frá 15.okt til 31.des eru spárnar gerðar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum og kl 19:00 uppfærð oftar ef þurfa þykir. Frá 1.jan til 1.júní eru spár gerðar daglega. Spárnar eru gerðar fyrir þrjá daga í senn. Spárnar ná yfir stór svæði og taka bæði til snjóflóða af náttúrulegum orsökum og af mannavöldum. Spárnar þurfa ekki að vera lýsandi fyrir snjóflóðahættu í byggð. Þær geta gagnast ferðafólki í fjalllendi og fleirum sem þurfa að taka ákvarðanir sem tengjast snjóflóðahættu, s.s. Vegagerðinni, fjallaleiðsögumönnum, rafveitum og rekstraraðilum skíðasvæða. Tilgangurinn er að draga úr áhættu almennings vegna snjóflóða.
Veðurstofan sinnir daglegu eftirliti með snjóalögum í
námunda við þéttbýlisstaði þar sem snjóflóðahætta er yfirvofandi. Veðurstofan
gefur einnig út viðvaranir um snjóflóðahættu og tekur þátt í ákvörðunum um
rýmingu húsa í samvinnu við heimamenn. Gerðar hafa verið rýmingaráætlanir og
rýmingarkort fyrir helstu þéttbýlisstaði landsins sem búa við
ofanflóðahættu. Rýmingaráætlanirnar eru unnar í samvinnu við
almannavarnanefndir staðanna og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Ofanflóðahættumat hefur verið unnið fyrir þéttbýli í snjóflóðabyggðum á
grundvelli reglugerðar 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða og flokkun og
nýtingu hættusvæða með síðari breytingum í reglugerð nr. 495/2007. Mat á
ofanflóðahættu í einstökum húsum eða byggingarreitum utan þéttbýlis þar sem
staðfest hættumat liggur ekki fyrir er gert með staðbundnu hættumati .
Vegna hættumatsins þurfa að fara fram ýmsar grundvallarrannsóknir á eðli
snjóflóða hérlendis. Samvinna er mikil við erlenda sérfræðinga og stofnanir. Á vefsíðum hættumats er að
finna skýrslur og aðrar upplýsingar um hættumat fyrir helstu þéttbýlisstaði
landsins sem búa við snjóflóðahættu. Fyrir hvern stað kemur fram hversu langt
vinna við hættumatið er komin og á sérstökum vefsíðum staðanna má nálgast gögn
með nánari upplýsingum.



